19. maí 2026
19. maí 2026
Birting álagningar einstaklinga 2026
Niðurstöður álagningar einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, verða birtar á þjónustuvef Skattsins 21. maí. Inneignir verða greiddar út 1. júní og launagreiðendur fá upplýsingar um skuldir til að draga af launum.

Niðurstöður álagningar einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, verða birtar á þjónustuvef Skattsins 21. maí. Inneignir verða greiddar út 1. júní og launagreiðendur fá upplýsingar um skuldir til að draga af launum.
Við álagningu eru gerðir upp ofgreiddir og vangreiddir skattar vegna fyrra árs auk þess sem lögð eru á gjöld svo sem útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra.
Inneignir verða greiddar út 1. júní
Inneignir eru lagðar inn á þann bankareikning sem skráður er hjá innheimtumönnum. Ef engar upplýsingar um skráðan bankareikning liggja fyrir er hægt að skrá nýjan eða breyta fyrri skráningu á þjónustuvef Skattsins.
Skuldir - dreifa greiðslu á lengra tímabil
Skuld eftir álagningu er skipt niður á allt að sjö gjalddaga. Innheimta skulda fer almennt í gegnum launagreiðendur. Þeim er send krafa um að draga skuld frá launum hvers mánaðar.
Gera greiðsluáætlun
Þau sem það vilja geta samið um að gera nýja greiðsluáætlun og skipta greiðslunni á lengra tímabil.Greiðsluáætlun er gerð til að lækka mánaðarlega greiðslubyrði en á móti kemur hærri vaxtakostnaður.
Innheimta hjá sjálfstætt starfandi og fólki ekki í vinnu
Þau sem ekki eru í vinnu, svo sem á eftirlaunum eða fæðingarorlofi, eða starfa sjálfstætt fá sendan greiðsluseðil vegna innheimtu skatta eftir álagningu.
Leiðbeiningar
Útbúnar hafa verið stuttar leiðbeiningar um hvernig lesa megi úr álagningunni á íslensku, ensku og pólsku, sem og bæklingar á íslensku og ensku.
Forsendur fyrir álagningu gjalda sem lögð eru á árið 2026
Þjónusta
Nánari upplýsingar um niðurstöðu álagningar má fá með því að senda fyrirspurn eða hringja. Einnig getur spjallmennið svarað ýmsum spurningum varðandi álagninguna og innheimtu.