Fara beint í efnið

Hvar fæ ég sakavottorð?

Einstaklingar geta sótt um sakavottorð á íslensku stafrænt:  https://island.is/sakavottord

Til þess að sækja stafrænt sakavottorð þarf umsækjandi að vera með rafræn skilríki á Íslandi og vera eldri en 15 ára. Hægt er að sækja um rafræn skilríki á þjónustustöðum Auðkennis.

Sakavottorðið er strax aðgengilegt í lokaskrefi umsóknarferlis. Einnig er vottorðið sent í pósthólf umsækjanda.

Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferlinu og er gjaldið 2.500 kr. Þegar umsókn hefur verið kláruð eru reikningar og greiðslukvittanir aðgengileg undir Fjármál á Mínum síðum.

Hægt er að mæta á skrifstofu sýslumanns og framvísa persónuskilríkjum til þess að fá sakavottorð.

Ef umsækjandi um sakavottorð hefur hvorki tök á að sækja um sjálfur eða nálgast vottorð sitt getur hann veitt öðrum skriflegt umboð, vottað af tveimur vitundarvottum, til að sækja um það og/eða veita því viðtöku hjá viðkomandi sýslumanni. 



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?