Fara beint í efnið

Hvernig nálgast útlendingar sem hafa búið á Íslandi sakavottorð?

Einstaklingar geta sótt um sakavottorð á íslensku en með enskri þýðingu í samræmdu skjali stafrænt:  https://island.is/sakavottord

Sakavottorðið er strax aðgengilegt í lokaskrefi umsóknarferlis. Einnig er vottorðið sent í pósthólf umsækjanda.

Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferlinu og er gjaldið 2.700 kr. Þegar umsókn hefur verið kláruð eru reikningar og greiðslukvittanir aðgengileg undir Fjármál á Mínum síðum.

Hægt er að mæta á skrifstofu sýslumanns og framvísa persónuskilríkjum til þess að fá sakavottorð.

Ef umsækjandi um sakavottorð hefur hvorki tök á að sækja um sjálfur eða nálgast vottorð sitt getur hann veitt öðrum skriflegt umboð, vottað af tveimur vitundarvottum, til að sækja um það og/eða veita því viðtöku hjá viðkomandi sýslumanni.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?