Fara beint í efnið

Hvað er veðbókarvottorð?

Veðbókarvottorð er skjal sem segir hvaða réttindi eða skyldur hafa verið þinglýst á tiltekna eign.

Algengt er að veðbókarvottorð innihaldi upplýsingar um:

  • Lán sem hvíla á eigninni.

  • Kvaðir sem þinglýst er a eignina.

  • Húsaleigusamninga.

  • Lóðarleigusamninga.

  • Eignaskiptasamninga.

  • Umboð fyrir aðila sem mega skrifa undir skjöl fyrir hönd eigenda.

  • Annað sem talið er skipta mál með tilliti til skráningar réttinda.

Hver sem er getur fengið veðbókarvottorð fyrir hvaða eign sem er. Einnig er hægt að fá ljósrit einstakra þinglýstra skjala.

Viðkomandi þarf að vita heiti og fastanúmer eignar, skipaskrárnúmer, skráningarnúmer ökutækis.

Eingöngu þeir sem eru með rafræn skilríki á Íslandi eða íslenska kennitölu geta sent beiðni um útgáfu veðbókarvottorð rafrænt. Hægt er að sækja um rafræn skilríki á þjónustustöðum Auðkennis. 

Veðbókarvottorðið er strax aðgengilegt í lokaskrefi umsóknarferlis. Einnig er vottorðið sent í pósthólf umsækjanda. 

Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferlinu og er gjaldið 2.200 kr. Þegar umsókn hefur verið kláruð eru reikningar og greiðslukvittanir aðgengileg undir Fjármál á Mínum síðum

Hér má finna nánari upplýsingar um veðbókavottorð.


Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?