Fara beint í efnið

Get ég fengið sakavottorð á skrifstofu sýslumanns?

Hægt er að mæta á skrifstofu sýslumanns og framvísa persónuskilríkjum til þess að fá sakavottorð ef umsækjandi er ekki með rafræn skilríki.

Ef umsækjandi um sakavottorð hefur hvorki tök á að sækja um sjálfur eða nálgast vottorð sitt getur hann veitt öðrum skriflegt umboð.

Sakavottorð kostar 2.500 kr.

Einstaklingar geta sótt um sakavottorð stafrænt:  https://island.is/sakavottord. Sakavottorðið er strax aðgengilegt í lokaskrefi umsóknarferlis. Einnig er vottorðið sent í pósthólf umsækjanda.

Sakavottorðið er gefið út á íslensku með enskri þýðingu í samræmdu skjali.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?