Fara beint í efnið

Hvar fæ ég veðbókarvottorð?

Þeir sem eru með rafræn skilríki á Íslandi eða íslenska kennitölu geta sent beiðni um útgáfu veðbókarvottorð rafrænt.

Veðbókarvottorðið er strax aðgengilegt í lokaskrefi umsóknarferlis. Einnig er vottorðið sent í pósthólf umsækjanda. 

Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferlinu og er gjaldið 2.200 kr. Þegar umsókn hefur verið kláruð eru reikningar og greiðslukvittanir aðgengileg undir Fjármál á Mínum síðum

Hér má finna nánari upplýsingar um veðbókarvottorð.

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki er hægt að óska eftir veðbókarvottorði hjá sýslumanni.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?