Fara beint í efnið

Sakavottorð á ensku eða dönsku

Stafrænt sakavottorðið er gefið út á íslensku með enskri þýðingu í samræmdu skjali.

Sakavottorðið er strax aðgengilegt í lokaskrefi umsóknarferlis. Einnig er vottorðið sent í pósthólf umsækjanda.

Greitt er með greiðslukorti í umsóknarferlinu og er gjaldið 2.700 kr. Þegar umsókn hefur verið kláruð eru reikningar og greiðslukvittanir aðgengileg undir Fjármál á Mínum síðum.

Hægt er að fá sakavottorð útgefið dönsku á pappír hjá sýslumönnum en framvísa þarf persónuskilríkjum til þess að fá sakavottorð.. Ef brot eru skráð á sakavottorð þarf þýðingu löggilts skjalaþýðanda á önnur mál en íslensku.  Þýðing er á kostnað þess sem óskar eftir vottorðinu. 

Ef umsækjandi um sakavottorð hefur hvorki tök á að sækja um sjálfur eða nálgast vottorð sitt getur hann veitt öðrum skriflegt umboð.



Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?