Stafrænt Ísland: Kílómetragjald
Er ég einhvern tímann undanþegin því greiða mánaðarlegt kílómetragjald?
Já. Ekki þarf að greiða kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum ef:
Bílar eru fluttir úr landi í takmarkaðan tíma.
Skilyrði fyrir undanþágunni er að staða á kílómetramæli sé skráð þegar bifreið er flutt úr landi og þegar bifreið er flutt til Íslands aftur auk þess sem staðfesting sé send til Skattsins. Staðfesting getur verið inn- og útflutningsskýrsla eða farmiði.
Skráningarmerki eru í varðveislu skráningaraðila.
Skilyrði fyrir undanþágunni er að staða á kílómetramæli sé skráð þegar skráningarmerkjum er skilað inn til geymslu.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Stafrænt Ísland