Fara beint í efnið

Umsókn tannlæknis um skráningu í viðskiptamannaskrá

Umsókn tannlæknis um skráningu í viðskiptamannaskrá

Þegar tannlæknir sækir um til Sjúkratrygginga til að verða skráður í viðskiptamannaskrá Sjúkratrygginga þarf að fylgja með eftirfarandi gögn:

  • Afrit af löggildingu tannlæknis.

  • Staðfestingu Landlæknis á að viðkomandi tannlæknir uppfylli faglegar kröfur og önnur skilyrði í heilbrigðislöggjöf.

  • Afrit af umboði til Tannlæknafélags Íslands (TFÍ) til að gera samninga fyrir sína hönd eða staðfestingu frá tannlæknafélaginu.

  • Staðfestingu vátryggingafélags á að tannlæknir sé með sjúklingatryggingu og starfsábyrgðartryggingu í gildi.

  • Notendasamningur Sjúkratrygginga og veitenda vegna tengingar við upplýsingkerfi Sjúkratrygginga.


Ef tannlæknir breytir um starfstöð þarf að tilkynna það til Embætti Landlæknis.

Ef tannlæknir er ekki aðili að TFÍ þarf hann að undirrita rammasamning um rafræn samskipti  og eftir atvikum, samning um tannlækningar barna.

Ef frekari upplýsingar vantar er hægt að senda tölvupóst á netfangið: tannmal@sjukra.is
Einnig er hægt að hringja í síma 515 0000 eða 515 0005.



Umsókn tannlæknis um skráningu í viðskiptamannaskrá

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar