Tannlækningar
Upplýsingar, eyðublöð og umsóknir fyrir fagaðila varðandi tannlækningar
Undirritaður var samningur milli tannlækna og Sjúkratrygginga og tók hann gildi þann 1. september 2024. Tannlæknir skal kynna sér efni samningsins.
Vilji tannlæknir starfa samkvæmt samningi Sjúkratrygginga og Tannlæknafélags Íslands um tannlækningar utan sjúkrahúsa er fyrsta skrefið að tilkynna Sjúkratryggingum um það. Til þess að gera það skal fara inn á vefsíðu Sjúkratrygginga – Sjúkratryggingar – velja málaflokkinn Heilbrigðisþjónusta og setja í viðfangsefni „Umsókn um þjónustusamning – tannlæknir“. Þá skal tannlæknir veita upplýsingar um hvar og hvenær hann hyggst hefja störf.
Áður en umsókn um þjónustusamning verður samþykkt þarf að vera búið að skila inn öllum tilskildum fylgigögnum, þ.e. afriti af starfsleyfi, afriti af staðfestingu embættis landlæknis til stofureksturs og afriti af starfsábyrgðartryggingu frá vátryggingafélagi, auk þess sem sækja þarf um sjúklingatryggingu í gegnum Gagnagátt Sjúkratrygginga. Þá þarf að afla umboðs frá Tannlæknafélagi Íslands. Í þeim tilgangi að fylgigögnin skili sér á réttu formi á réttan stað skal senda þau í gegnum Gagnagátt Sjúkratrygginga. Þegar búið er að skila inn umsókn fær tannlæknir senda skilmála um aðgang fyrir upplýsingakerfi Sjúkratrygginga til rafrænnar undirritunar.
Þegar tannlæknir hefur skilað inn öllum ofangreindum gögnum skal hann senda umsókn um þjónustusamning hér.
Þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir fær tannlæknir sendan þjónustusamning til rafrænnar undirritunar.
Sjúkratryggingar greiða ekki reikninga vegna verka sem unnin eru áður en þjónustusamningur hefur verið undirritaður.
Það er á ábyrgð tannlæknis að koma umsókn og tilskildum gögnum til Sjúkratrygginga.
Hyggist tannlæknir flytja á aðra starfsstöð og/eða bæta við starfsstöð, þurfa eftirfarandi upplýsingar að liggja fyrir áður en viðkomandi hefur störf á nýjum stað.
Staðfesting embættis landlæknis á að viðkomandi tannlæknir uppfylli faglegar lágmarkskröfur til reksturs þeirrar heilbrigðisþjónustu sem tilkynnt var um (skal liggja fyrir áður en starfsemin hefst á þeirri starfsstofu sem tannlæknir flytur/bætir við starfsemi sína).
Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu (frjálsri ábyrgðartryggingu) frá vátryggingafélagi.
Ef breyting verður á starfshlutfalli er mikilvægt að uppfæra skráningu vegna sjúklingatryggingar inni á Gagnagátt Sjúkratrygginga, þannig að heildarstarfshlutfall sé skráð.
Tilkynningu skal senda á sjukra@sjukra.is að lágmarki tveimur vikum áður en störf á nýrri starfsstöð hefjast.
