Leiðbeiningar um Gagnagátt
Í Gagnagátt eru birtar upplýsingar um viðskipti rekstraraðila við Sjúkratryggingar, s.s. greiðsluskjöl, bréf og ýmis yfirlit í tengslum við greiðslur. Aðgang fá allir rekstraraðilar og heilbrigðisstarfsmenn sem eru í viðskiptum við Sjúkratryggingar.
Upplýsingar um greiðslur eru á kennitölu rekstraraðila en fagleg samskipti, s.s. vegna vottorða og bréfa til læknis, eru á kennitölu viðkomandi.
Gagnagátt er „mínar síður“ fyrir heilbrigðisstarfsmenn og rekstraraðila sem eru í viðskiptum við Sjúkratryggingar.
Upplýsingar í Gagnagátt eru tvískiptar
Viðskiptaupplýsingar. Upplýsingar um viðskipti rekstraraðila við Sjúkratryggingar s.s. greiðsluskjöl og yfirlit ýmiss konar í tengslum við greiðslur. Aðgang fá allir rekstraraðilar sem eru í viðskiptum við Sjúkratryggingar. Aðgangur er eingöngu veittur í gegnum kennitölu rekstraraðila.
Upplýsingar um réttindi sjúklinga og umsýsla. Samanstanda af birtingu á réttindastöðu sjúklinga, umsókna, vottorða og ýmissa upplýsinga sem tengjast sjúklingum. Aðgang fá heilbrigðisstarfsmenn og starfsmenn þeirra. Aðgangur er eingöngu veittur í gegnum eigin kennitölu heilbrigðisstarfsmanns.
Aðgangur að Gagnagáttinni
Eftirtaldir aðilar hafa aðgang að upplýsingum í Gagnagáttinni:Persónuverndarfulltrúar. Persónuverndarfulltrúar rekstraraðila og/eða heilbrigðisstofnana geta fengið sérstakan aðgang að Gagnagátt til að senda viðkvæm skjöl til Sjúkratrygginga og móttaka slík skjöl í gegnum gáttina. Til að persónuverndarfulltrúar geti nýtt sér þessa lausn þarf að senda beiðni um stofnun aðgangs til hjalp@sjukra.is.
Rekstraraðili (fyrirtæki/stofnanir) fær viðskiptaaðgang með nýskráningu á kennitölu.
Heilbrigðisstarfsmaður fær aðgang að réttindastöðu og umsýslu með nýskráningu eigin kennitölu. Heilbrigðisstarfsmaður sem er í viðskiptum við Sjúkratryggingar í eigin kennitölu fær aðgang að viðskiptahluta og réttindahluta Gagnagáttar.
Starfsmenn í heilbrigðisþjónustu. Rekstraraðili eða veitandi heilbrigðisþjónustu getur veitt starfsmanni (t.d. starfsmanni í móttöku eða í bókhaldi) aðgang að Gagnagáttinni og úthlutað honum aðgangi að upplýsingum sbr. lið I. Virkni til úthlutunar er staðsett inni í gáttinni undir flokknum „Úthlutun á aðgangi“. Aðgangur starfsmanns er á ábyrgð viðkomandi aðgangsveitanda samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar. Starfsmaður undirritar sérstaka trúnaðaryfirlýsingu.
Miðlun upplýsinga og gagna til Sjúkratrygginga
Sjúkratryggingar leggja ríka áherslu á að miðlun gagna og önnur samskipti fari fram í gegnum Þjónustugátt stofnunarinnar, þ.e. Gagnagátt, sbr. 50. gr. laga nr. 112/2008. Öruggasta leiðin fyrir viðskiptavini Sjúkratrygginga til að senda beiðnir, umsóknir og önnur gögn er í gegnum Þjónustugátt, sem og að taka á móti gögnum frá stofnuninni.
Veitendur heilbrigðisþjónustu og aðrir rekstraraðilar geta sent skjöl og beiðnir í gegnum Gagnagátt stofnunar/fyrirtækis og tekið á móti gögnum.
Persónuverndarfulltrúar geta fengið sérstakan aðgang að Gagnagátt til að senda skjöl og beiðnir til Sjúkratrygginga og taka á móti gögnum.
Viðskiptaupplýsingar | Réttindastaða og umsýsla | |
|---|---|---|
Rekstraraðili | X | |
Heilbrigðisstarfsmaður (getur einnig verið rekstraraðili) |
| |
Starfsmaður í heilbrigðisþjónustu (vinnur í umboði rekstraraðila eða heilbrigðisstarfsmanns) | |
|
Innskráning á Gagnagátt notar innskráningarþjónustu Ísland.is, hægt er að skrá sig inn sem Einstaklingur eða Umboð gegnum Ísland.is. Allur almennur aðgangur fer í gegnum Einstaklingur en einstaklingar sem hafa umboð fyrir fyrirtæki / stofnun í gegnum Ísland.is þurfa að nota Umboð gegnum Ísland.is.
Einstaklingar sem eru skráðir sem aukanotendur skrá sig inn sem Einstaklingur.

Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum, skilríki í appi eða skilríki á korti. Þeir sem skrá sig inn sem Einstaklingur fara beint inn á gáttina nema sé um fleiri en einn aðgang að ræða og birtist þá valsíða til að velja réttan aðgang.

Þeir sem skrá sig inn í gegnum Umboð gegnum Ísland.is fá upp valmynd þar sem einstaklingur þarf að velja í hvaða umboði hann er að skrá sig inn á gáttina.

Þegar komið er inn á forsíðu Gagnagáttar er rétt að smella á Stillingar. Fara yfir skráningarsvæðin og tryggja sérstaklega að rétt netfang og bankaupplýsingar séu skráðar.
Sjálfgefið er merkt við að fyrirtæki vilji fá tölvupóst þegar nýtt skjal er birt í gáttinni, en hér er hægt að merkja við nei og þá verður ekki sendur tölvupóstur þegar nýtt skjal er tengt við gáttina.
Getur til dæmis átt við ef fyrirtæki sem er í miklum samskiptum við Sjúkratryggingar og er að fá oft bréf í gáttina.

Undir Þjónusta SÍ birtist allur sá aðgangur sem er á viðkomandi aðgangi. Ef ýtt er á heiti flokks, eins og Skjöl þá opnast fleiri valmöguleikar þar undir.

Undir Skjöl opnast gluggi þar sem m.a. er hægt að smella á Bréf. Sjálfgefið birtast öll
„ólesin“ bréf, en hægt er að greina á milli lesinna og ólesinna bréfa á því að línan fyrir ólesnu bréfin er feitletruð. Um leið og búið er að opna bréfið verður letrið venjulegt og þau hverfa úr þessari mynd. Til að sjá og leita að bæði lesnum og ólesnum bréfum er hakað í Virkja leitarskilyrði og er þar hægt að velja dagsetningu þess tímabils sem á að leita í.
Ef smellt er á heiti dálks (til dæmis Kennitala) þá er bréfum raðað frá lægsta gildi til þess hæsta. Eins og sést hér á mynd fyrir neðan er röðunin eftir Dagsetning og birtist þá ör niður fyrir aftan nafnið. Dálkurinn Heiti gefur til dæ uppmislýsingar um uppruna bréfsins, það er úr hvaða málaflokki Sjúkratrygginga bréfið berst. Heiti og tegund gefa notendum möguleika á að flokka bréfin og einfalda þeim að nálgast bréf sem þeir þurfa að skoða.
Ef smellt er á „Prenta“ hnappinn þá eru upplýsingarnar í glugganum prentaðar. Við hverja línu bréfs er merki sem sýnir á hvaða formi bréfið er. Með því að smella á táknmyndina fyrir .pdf skrár, þá er bréfið sótt niður á tölvuna og hægt að opna.
Ath. Ef starfsmenn Sjúkratrygginga skrá skýringu með bréfinu birtist i fyrir ofan táknmyndina fyrir pdf skjöl.
Með því að setja bendilinn yfir (i) birtist skýringin.


Til að nálgast greiðsluskjöl/kvittanir er smellt á Greiðsluskjöl undir Skjöl. Þar birtast öll greiðsluskjöl sem sent hafa verið á kennitölu sem er á bakvið viðkomandi aðgang.

Táknmyndirnar sem birtast fyrir aftan reitinn fyrir fjárhæðir hafa eftirfarandi skýringu.

Viðkvæmustu flokkar bréfa eru aðgangsstýrðir niður á aukanotendur. Aðalnotandi sér öll skjöl sem birt eru í Gagnagátt en aukanotendur sjá ekki skjöl í þeim málaflokkum sem eru aðgangsstýrðir nema sé opnað fyrir það. Á þetta við alla þrjá flokkana: Greiðsluskjöl, Mín skjöl og Bréf.
Til viðkvæmustu flokkana teljast meðal annars: Slysatryggingar, Sjúklingatrygging og Meðferðir erlendis.
Hafa þarf samband við hjalp@sjukra.is til að opna á sýn fyrir aðgangsstýrða málaflokka undir skjölum.
Skráning aukanotanda fer í gegnum Úthlutun á aðgangi og er sá valmöguleiki einungis opinn fyrir þann aðila sem hefur aðgang að skilríkjum fyrirtækis nema að ósk komi frá forráðamanni fyrirtækis / stofnunar að opnað sé á þennan aðgang að aukanotanda og er það einungis gert með staðfestingu yfirmanns.

Undir Skjalaskil – Rafræn skil á skrá er hægt að skila inn gögnum á öruggan rafrænan hátt til Sjúkratrygginga.

Undir Tegund skila er hægt að velja þann málaflokk sem á að senda gögn á. Ef enginn flokkur er í boði eða vantar inn réttan flokk er hægt að senda póst á hjalp@sjukra.is og óska eftir því að opnað sé fyrir viðeigandi flokk skila. Hægt er að skrá skýringu inn undir Skýring en sá reitur er valkvæður.
Skjalið sem á að senda er valið og það dregið yfir gluggann Skrár til að skila. Einnig er hægt að ýta á Finna skrá, þá opnast gluggi þar sem hægt er að finna skjalið/skjölin sem á að senda. Hægt er að velja mörg skjöl í einu. Ef rangt skjal hefur verið valið þá er hægt að „eyða“ því áður en sent er með því að smella á rautt X undir Aðgerðir.
Til að ganga frá sendingunni skal ýta á hnappinn Senda. Staðfesting á móttöku skjalanna birtist og skjölin birtast undir Innsendar skrár.
Um er að ræða skilmála sem gilda um notkun og aðgang að Gagnagátt Sjúkratrygginga. Skilmálar þessir taka gildi gagnvart notanda þegar viðkomandi hefur samþykkt þá.
Notkun Gagnagáttar
Gagnagátt er „mínar síður“ fyrir heilbrigðisstarfsmenn og rekstraraðila sem eru í viðskiptum eða eiga í samskiptum við Sjúkratryggingar.
Tilgangur með notkun Gagnagáttar er að miðla upplýsingum og gögnum með öruggum hætti. Þeim sem eiga í samskipum við Sjúkratryggingar er skylt að nota Gagnagáttina til að miðla og taka við gögnum og upplýsingum sem varða einstaklinga, samanber 50. grein laga númer 112/2008.
Flokkar upplýsinga
Upplýsingar í Gagnagátt eru þrískiptar:
Viðskiptaupplýsingar. Upplýsingar um viðskipti rekstraraðila við Sjúkratryggingar, þar á meðal greiðsluskjöl og greiðsluyfirlit.
Réttindaupplýsingar. Upplýsingar um réttindi og réttindastöðu einstaklinga, umsóknir, vottorð og aðrar upplýsingar sem tengjast umsýslu í tengslum við málefni notenda heilbrigðisþjónustu/umsækjenda.
Gagnaskil. Gagnamiðlun í tengslum við einstök mál/umsóknir.
Innskráning
Við innskráningu í Gagnagátt er notuð innskráningarþjónusta Ísland.is. Einstaklingar sem skráðir eru sem aukanotendur geta skráð sig sem Einstaklingur. Aðalnotendur, það er einstaklingar sem hafa umboð fyrir rekstraraðila/veitendur heilbrigðisþjónustu (stofnanir/fyrirtæki) í gegnum Ísland.is, eiga að skrá sig sem Umboð gegnum Ísland.is.
Ef notandi verður á einhvern hátt var/vör við að óviðkomandi aðili hafi komist yfir rafræn skilríki skal notandi hafa strax samband við útgáfuaðila rafrænna skilríkja og óska eftir að viðkomandi skilríkjum sé lokað til þess að koma í veg fyrir að þau/hann sé(u) misnotuð af óviðkomandi aðilum í Gagnagátt.
Vinsamlegast kynntu þér vel skilmála Ísland.is sem hægt er að nálgast á heimasíðu þeirra.
Aðgangur
Eftirtaldir aðilar geta fengið aðgang að Gagnagátt:
Rekstraraðilar og veitendur heilbrigðisþjónustu (fyrirtæki/stofnanir) sem eru í viðskiptum við Sjúkratryggingar geta fengið aðgang að viðskiptaupplýsingum og gagnaskilum. Aðalnotandi getur skráð starfsmenn sem aukanotendur. Aðgangur er eingöngu veittur í gegnum kennitölu rekstraraðila/stofnunar.
Heilbrigðisstarfsmenn geta fengið aðgang að réttindaupplýsingum í gegnum eigin kennitölu. Heilbrigðisstarfsmaður sem er í viðskiptum við Sjúkratryggingar í eigin kennitölu getur fengið aðgang að viðskiptaupplýsingum, réttindaupplýsingum og gagnaskilum.
Persónuverndarfulltrúar geta fengið sérstakan aðgang að Gagnagátt.
Notkun tengiliðaupplýsinga
Aðalnotandi rekstraraðila eða veitanda heilbrigðisþjónustu skal skrá netfang stofnunar/fyrirtækis undir Stillingar. Heilbrigðisstarfsmenn og persónuverndarfulltrúar skulu skrá vinnunetföng, ekki einkanetföng undir Stillingar.
Netfang sem skráð er í Gagnagátt er notað við:
sendingu tilkynninga um ný bréf í Gagnagátt.
samskipti
önnur lögbundin verkefni Sjúkratrygginga, þjónustukannana og fleira.
Skyldur notenda
Notandi ber að gera nauðsynlegar varúðarráðstafanir til að tryggja persónubundna öryggisþætti við innskráningu og notkun Gagnagáttar.
Notandi ber ábyrgð á öllum aðgerðum sem hann framkvæmir í kjölfar innskráningar í Gagnagátt.
Notandi ber ábyrgð á að upplýsingar og gögn sem hann sendir í gegnum Gagnagáttina séu réttar. Ef um er að ræða upplýsingar sem eiga uppruna sinn hjá öðrum en notanda ber viðkomandi ábyrgð á réttleika þeirra.
Notanda er eingöngu heimilt að nota aðgang að Gagnagátt í þágu starfa sinna.
Notanda er bannað að nota aðganginn í eigin þágu, það er vegna réttinda og eða mála viðkomandi hjá Sjúkratryggingum.
Notanda er óheimilt að leyfa öðrum aðilum að nýta aðgang eða miðla upplýsingum úr Gagnagátt til óviðkomandi aðila.
Verði notandi var við að aðrir noti aðgang hans ber honum að upplýsa Sjúkratryggingar tafarlaust í gegnum netfangið hjalp@sjukra.is
Aðgangsveiting aukanotenda er á ábyrgð rekstraraðila og veitenda heilbrigðisþjónustu (aðalnotanda).
Notandi ber ábyrgð á því að notendaupplýsingar hans, þar á meðal netfang, séu réttar.
Öryggi og varðveislutími
Gerðar hafa verið viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að tryggja öryggi upplýsinga sem er að finna í Gagnagáttinni. Gagnagáttin er varin gegnum vefsel og eru öll samskipti dulkóðuð.
Upplýsingar í Gagnagáttinni eru varðveittar í ótilgreindan tíma.
Skyldur Sjúkratrygginga
Sjúkratryggingar eru ábyrgðaraðili að þeim upplýsingum sem er að finna í Gagnagáttinni. Ef um er að ræða upplýsingar sem eiga uppruna sinn hjá öðrum en Sjúkratryggingum ber viðkomandi ábyrgð á réttleika þeirra. Um vinnslu persónuupplýsinga í Gagnagátt fer eftir ákvæðum 50. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og eftir lögum nr. 97/1997 um réttindi sjúklinga, þegar við á. Farið er með allar upplýsingar í Gagnagátt sem trúnaðarmál. Sjá nánar persónuverndarstefnu Sjúkratrygginga.
Annað
Sjúkratryggingar áskilja sér rétt til endurskoðunar skilmála þessara án sérstaks fyrirvara eða viðvörunar.
Við brot notanda á skilmálum þessum áskilja Sjúkratryggingar sér rétt til að loka á aðgang notanda að Gagnagáttinni og krefja hann um skaðabætur eða beita öðrum lögmætum úrræðum vegna tjóns er Sjúkratryggingar eða viðskiptavinir stofnunarinnar kunna að verða fyrir vegna brotsins.
Gögn og upplýsingar í Gagnagátt gætu innihaldið persónuupplýsingar, þar á meðal viðkvæmar. Ef gögn hafa borist röngum viðtakanda ber þeim aðila að gæta fyllsta trúnaðar og tilkynna Sjúkratryggingum um það. Ekki má skrá gögnin hjá sér eða notfæra sér þau á nokkurn hátt, samanber lög númer 70/2022 um fjarskipti. Verði notandi var við slíkt skal upplýsa persónverndarfulltrúa Sjúkratrygginga tafarlaust í gegnum netfangið personuvernd@sjukra.is
