Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Þarftu að senda reikning til Sjúkratrygginga?

Sjúkratryggingar eru með tvær kennitölur:

1. Kennitalan 650309-0220

Þessi kennitala (650309-0220) er notuð vegna heilbrigðisþjónustu sem Sjúkratryggingar greiða fyrir samkvæmt samningum.

Það eru fyrst og fremst veitendur heilbrigðisþjónustu sem þurfa að nota hana.

Einstaklingar sem sækja um greiðsluþátttöku þurfa yfirleitt ekki á kennitölunni að halda þegar umsóknir eru sendar inn með hefðbundnum hætti.

Hægt er að senda reikninga fyrir þjónustu sem Sjúkratryggingum ber að greiða á eftirfarandi hátt:

1. Gagnagátt fagaðila

Örugg leið fyrir fagaðila (t.d. heilbrigðisstarfsfólk, starfsfólk stofnana eða starfsfólk birgja) til að m.a. skila inn reikningum eða öðrum skjölum til Sjúkratrygginga. Sjá leiðbeiningar hér.

2. Gagnaskil einstaklinga

Örugg leið fyrir einstaklinga til að skila inn reikningum, umsóknum og fylgiskjölum til Sjúkratrygginga. Sjá leiðbeiningar hér.

3. Vefþjónustur

  • SFR – Sérfræðireikningar

Sérfræðilæknar geta notað þessa vefþjónustu til að senda Sjúkratryggingum reikninga

  • TLK – Tannlæknareikningar

Tannlæknar geta notað þessa vefþjónustu til að senda Sjúkratryggingum reikninga

  • SJU – Þjálfunarreikningar

Þjálfarar, t.d. sjúkraþjálfarar, geta notað þessa vefþjónustu til að senda Sjúkratryggingum reikninga

  • HTM -Hjálpartækjareikningar

Hjálpartækjabirgjar geta notað þessa vefþjónustu til að senda Sjúkratryggingum reikninga

  • LKS – Lyfjareikningar

Lyfsalar geta notað þessa vefþjónustu til að senda Sjúkratryggingum reikninga

2. Kennitalan 480408-0550

Þessi kennitala (480408-0550) er notuð fyrir rekstur stofnunarinnar, t.d. fyrir kostnað vegna húsnæðis og fyrir vörur og þjónustu sem að tengjast rekstri á stofnuninni sjálfri.

Reikninga á kt. 480408-0550 skal senda rafrænt á xml-formi með skeytamiðlun.

Nánar um kaup ríkisins – þar með talið Sjúkratrygginga - á vöru og þjónustu.