Leiðbeiningar fyrir gagnaskil einstaklinga
Smella á hlekkinn „Gagnaskil einstaklinga“
Skrá inn með rafrænum skilríkjum
Hægt er að sjá eldri umsóknir og halda áfram með ókláraðar umsóknir þar sem staða er “Skrá upplýsingar”. Til að hefja nýja umsókn er smellt á „Búa til nýja umsókn“.
Skrifa inn netfang og símanúmer ef vantar annars staðfesta að upplýsingar séu réttar og smella á „Vista og halda áfram“
Velja tegund skila og skrifa skýringu á gögnunum. Athugið mikilvægt er að velja réttan málaflokk til þess að gögnin berist á réttan stað. Smella á „Vista og halda áfram“.
Hlaða upp skjölum og smella á „Vista og halda áfram“
Smella á „Senda inn“ til að klára umsókn