Ljósmæður
Upplýsingar, eyðublöð og umsóknir fyrir ljósmæður
Vilji ljósmóðir starfa samkvæmt samningi Sjúkratrygginga og Félags Heimaþjónustuljósmæðra um þjónustu sjálfstætt starfandi ljósmæðra er fyrsta skrefið að tilkynna Sjúkratryggingum um það. Til þess að gera það skal fara inn á vefsíðu Sjúkratrygginga – Sjúkratryggingar – velja málaflokkinn Samningar – innkaup og setja í viðfangsefni „Umsókn um þjónustusamning – ljósmóðir“. Þá skal ljósmóðir veita upplýsingar um hvenær hún hyggst hefja störf.
Áður en umsókn verður samþykkt þarf að vera búið að skila inn öllum tilskildum fylgigögnum, þ.e. afriti af starfsleyfi, afriti af staðfestingu embættis landlæknis á sjálfstæðum rekstri ljósmóður og afriti af starfsábyrgðartryggingu frá vátryggingafélagi, auk þess sem sækja þarf um sjúklingatryggingu í gegnum Gagnagátt Sjúkratrygginga. Í þeim tilgangi að fylgigögnin skili sér á réttu formi á réttan stað skal senda þau í gegnum Gagnagátt Sjúkratrygginga. Þegar búið er að skila inn umsókn fær ljósmóðir senda Skilmála um aðgang fyrir upplýsingakerfi Sjúkratrygginga til rafrænnar undirritunar.
Sjúkratryggingar greiða ekki reikninga vegna verka sem unnin eru áður en þjónustusamningur hefur verið undirritaður.
Það er á ábyrgð ljósmóður að koma umsókn og tilskildum gögnum til Sjúkratrygginga.
Aðstoð ljósmóður við fæðingu í heimahúsum
