Hjúkrunar- og dagdvalarheimili
Upplýsingar fyrir fagaðila varðandi hjúkrunar- og dagdvalarheimili
Í lok mars 2022 skrifuðu Sjúkratryggingar, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV) og Samband íslenskra sveitarfélaga undir framlengingar á samningum um þjónustu hjúkrunarheimila. Samningarnir voru þá framlengdir til og með 31. mars 2025 (sjá link fyrir neðan). Samið er við hvert hjúkrunarheimili fyrir sig og eru samningarnir samhljóða. Upphaflega tóku þeir gildi 1. janúar 2020.
Aftur var skrifað undir framlengingar í lok mars 2025 til skamms tíma, með ákvæði þess efnis að samningar framlengdust sjálfkrafa til og með 31. mars 2026 ef samningsaðilar hefðu undirritað sameiginlega yfirlýsingu varðandi tiltekin verkefni, sem aðilar eru sammála um að vinna í sameiningu. Sú yfirlýsing var undirrituð í júlí 2025 og því gilda samningarnir nú út mars 2026.
Hægt er að hafa samband við Sjúkratryggingar hér
Gjaldskráin tekur til daggjalda fyrir þjónustu við sjúkratryggða einstaklinga í dagdvalarrýmum á vegum stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum árið 2026 og eru án samnings við Sjúkratryggingar.
Upphæð greiðsluþátttöku notenda þjónustu dagdvalar kemur fram í reglugerð um dagdvöl aldraðra með síðari breytingum.
Í gjaldskránni eru tilgreind verð og fjöldi rýma sem ákvarðar umfang þjónustunnar sem greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga tekur til. Gjaldskráin gildir frá og með 1. janúar 2026.
Í þessum þjónustukröfum eru settar fram almennar kröfur til dagdvalar fyrir aldraða.
Í mars 2022 var reglum um styrki vegna hjálpartækja fyrir íbúa á hjúkrunarheimilum breytt. Sjúkratryggingar greiða nú styrki vegna tiltekinna hjálpartækja til íbúa hjúkrunarheimila sem áður var á hendi hjúkrunarheimilanna sjálfra að útvega og greiða fyrir. Þetta á t.d. við um tiltekin hjálpartæki vegna öndunarmeðferðar og blóðrásarmeðferðar, stoðtæki, stómahjálpartæki, göngugrindur, hjólastóla og fylgihluti með þeim og tölvur til sérhæfðra tjáskipta.
Breytingin felur m.a. í sér að einstaklingur í heimahúsi sem nýtir sér tiltekin hjálpartæki líkt og hér um ræðir heldur þeim þegar hann flytur inn á heimilið, í stað þess að hjúkrunarheimilið útvegi honum önnur hjálpartæki í þeirra stað.
Kveðið er á um umræddar breytingar með reglugerð nr. 239/2022 um breytingu á reglugerð nr. 427/213 um greiðslur öldrunarstofnana fyrir heilbrigðisþjónustu og reglugerð nr. 238/2022 um breytingu á reglugerð nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartækja.
Bent er á að hjúkrunarheimilin sækja um viðkomandi hjálpartæki fyrir hönd íbúa sinna í gegnum Gagnagátt. Ef ekki er um 100% greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga að ræða þá greiða hjúkrunarheimilin mismuninn.
Tryggingastofnun sér um útreikning á kostnaðarþátttöku/dvalargjaldi íbúa á hjúkrunarheimilum. Sjúkratryggingar ná reglulega í kostnaðarþátttöku íbúa rafrænt til Tryggingastofnunar og birtir upplýsingar í Gagnagátt heimilanna ásamt því að draga upphæðirnar af mánaðarlegum uppgjörum við heimilin. Heimilin innheimta síðan kostnaðarþátttökuna af íbúum.
Á heimasíðu Tryggingastofnunar er hægt að nálgast upplýsingar um útreikning kostnaðarþátttöku/dvalargjalds og fleira.
