Fara beint í efnið

Greiðsluþátttaka vegna tæknilegra hjálpartækja

Fræðsla vegna umboðsveitingar

Breytingar hafa orðið á fyrirkomulagi á fræðslu til að fá aðgang að umboðsveitingu hjálpartækja Sjúkratrygginga.

Nú getur sá heilbrigðisstarfsmaður sem óskar eftir að fá aðgang að umboðsveitingu hjálpartækja sent fyrirspurn hér og óskað eftir aðgangi að umboðsveitingu hjálpartækja. Í kjölfarið fær viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður sendan hlekk með fræðslu sem hægt er að horfa á þegar hentar, ásamt frekari upplýsingum.

Vinsamlega athugið að vegna sumarfría verður ekki hægt að opna fyrir aðgang að umboðsveitingu í júlí.

Þjónustuaðili

Sjúkra­trygg­ingar