Vitundarvakning: Ekki treysta á heppni
24. júní 2026
Vinnueftirlitið stendur nú fyrir vitundarvakningunni "Ekki treysta á heppni" sem er ætlað að minna á notkun fallvarna en fall úr hæð er ein algengasta orsök banaslysa við vinnu hér á landi.

Vitundarvakningunni fylgir myndband sem sýnir hvað slysin geta verið fljót að gerast ef teknar eru áhættur og viðeigandi fallvarnir eru ekki notaðar.
Þá vísar hún á frekara fræðsluefni um fall við vinnu og forvarnir.
Endilega kynntu þér málið því fall við vinnu getur verið dauðans alvara.