Vinnuvernd í verkefnadrifnu hagkerfi – morgunfundur
26. apríl 2022
Vinnueftirlitið stendur fyrir morgunfundi undir yfirskriftinni Vinnuvernd í verkefnadrifnu hagkerfi í samstarfi við Vinnuvistfræðifélag Íslands (VINNÍS) fimmtudaginn 28. apríl.
Fundurinn er haldinn í tilefni af Alþjóðlega vinnuverndardeginum sem ber upp 28. apríl ár hvert. Alþjóðavinnumálastofnunin fer fyrir deginum og í ár eru einkunnarorð hans samvinna og samtal um jákvæða vinnustaðamenningu og vinnuvernd.
Fundurinn, sem hefst klukkan 8.30 og stendur til 10.30, er öllum aðgengilegur í beinu streymi.
Fundarstjóri er Sigurður Einarsson, sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu.
Dagskrá:
8.30 Sigurður Einarsson
Kynning
8:40 Margrét Ingólfsdóttir,
sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu.
Gott félagslegt vinnuumhverfi í dag og til framtíðar.
9:00 Hrefna Hugosdóttir,
sérfræðingur í vinnuvernd hjá Auðnast.
Félagslegt áhættumat – Greining og góður leiðarvísir sem tryggir öryggi og heilsu starfsfólks.
9:20
Hlé
5-10 mínútur
9:30 Herdís Pála Pálsdóttir
Giggarar – bylting á vinnumarkaði, eða er þetta ekkert nýtt?
9:50 Jakob Tryggvason,
formaður félags tæknifólks.
Virkar öryggisnetið í verkefnadrifnu hagkerfi?
10:10 Guðmundur Heiðar Guðmundsson,
lögmaður á vinnumarkaðssviði hjá Samtökum atvinnulífsins
.
Kallar verkefnadrifið hagkerfi á endurskoðun regluverks?
10:25 Sigurður Einarsson
Lokaorð