Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Vinnueftirlitið hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í fimmta skipti

19. október 2026

Vinnueftirlitið hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 og er það fimmta árið í röð sem stofnunin hlýtur þann heiður.

Viðurkenningin er veitt þeim fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum sem hafa náð því markmiði að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í efsta lagi stjórnunar.

Að þessu sinni hlutu 163 viðurkenningu og er það 27,3% fjölgun milli ára.

“Það er afskaplega ánægjulegt að sjá sífellt fleiri vinnustaði bætast í hópinn. Fjölbreytt forysta skapar rými fyrir ólík sjónarmið og hæfileika starfsfólks sem er ein af forsendum heilbrigðrar vinnustaðamenningar og þess að vinnustaðir nái árangri,” segir Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins.”

Viðurkenningunum er ætlað að vekja athygli á þeim fyrirtækjum og stofnunum sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í jafnréttismálum og hvetja aðra til dáða, en þrátt fyrir framfarir eru konur aðeins 21,3 prósent framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi svo enn er mikið verk að vinna.