Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Viltu stuðla að öryggi með eftirliti á vinnuvélum

29. janúar 2024

Viltu ganga til liðs við okkur hjá Vinnueftirlitinu og taka þátt í að auka vellíðan og öryggi starfsfólks á vinnumarkaði?

Viinnuverndarsjodur

Vinnueftirlitið leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi með þekkingu og áhuga á vinnuvélum og tækjum til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga á vinnuverndarsviði.Viðkomandi sinnir vinnuvélaskoðunum og hefur möguleika á því að vinna að sérverkefnum þeim tengdum.Gleði, opið og lausnarmiðað hugarfar eru eiginleikar sem við leitum að.Um er að ræða 100% starf á starfstöð okkar í Reykjavík.Einnig er mögulegt að sinna starfinu frá Selfossi, Akranesi eða Reykjanesbæ. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum getur verið um lengri ferðalög að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd eftirlits með skoðunarskyldum vinnuvélum og tækjum (lyftarar, jarðvinnuvélar, kranar, húsalyftur, katlar og aðrar tilfallandi vinnuvélar og tæki). Í því felst meðal annars skýrslugerð vegna eftirlitsins og eftirfylgni með fyrirmælum sem sett eru fram.

  • Þátttaka í umbótastarfi og þróun eftirlits með vinnuvélum og tækjum sem stofnunin sinnir.

  • Fræðsla til atvinnurekenda og starfsfólks um vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu.

  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Iðn- eða tæknimenntun sem nýtist í starfi, svo sem vélvirkjun, bifvélavirkjun, rafvirkjun eða önnur iðn-/tækniþekking.

  • Sérhæfð reynsla og þekking sem nýtist í starfi, svo sem vinna við stjórnun og viðgerðir vinnuvéla eða önnur reynsla/þekking sem kann að nýtast.

  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.

  • Rík þjónustulund.

  • Frumkvæði og framsýni.

  • Mikil hæfni í samskiptum.

  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

  • Enskukunnátta er skilyrði.

  • Kunnátta í þriðja tungumáli er kostur.

  • Reynsla af kennslu og eða framsögu er kostur.

  • Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur.

Vinnueftirlitið hefur þróast í takt við örar breytingar á vinnumarkaði og leggur sig fram við að skapa góðan vinnustað með heilbrigða vinnustaðamenningu. Markmiðið er að stuðla að bættri vellíðan, heilsu og öryggi starfsfólks þannig að öll komi heil heim. Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinbers starfsfólks og er markmið Vinnueftirlitsins að greiða laun eins og best gerist hjá ríkinu.

Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um umsagnaraðila ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstudd hæfni viðkomandi sem nýtast mun í starfinu.

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar næstkomandi. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út og öllum umsóknum verður svarað. Vinsamlegast sækið um á alfred.is.

Við hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um.Nánari upplýsingar veitir Heimir Guðmundsson, sviðsstjóri sviðs vinnuverndar heimir.gudmundsson@ver.is og Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar (bergrun.sigurjonsdottir@ver.is)

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439