Vertu skipstjóri í eigin huga
4. ágúst 2026
Reynslan sýnir að frelsi, virðing og umburðarlyndi leiðir til framfara og velgengni. Þetta á við um einstaklinga, vinnustaði og samfélagið í heild eins og Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, lýsir í meðfylgjandi grein.

Reynslan hefur ítrekað sýnt að framfarir og velgengni fylgja í kjölfar frelsis, virðingar og umburðarlyndis. Þegar fólk fær svigrúm til að hugsa öðruvísi, læra hvert af öðru og vinna saman að sameiginlegum markmiðum skapast jarðvegur fyrir nýjar hugmyndir, skapandi samstarf og árangur. Neikvæðni, þröngsýni og útilokun grafa hins vegar undan trausti og draga úr frumkvæði, sköpunarkrafti og nýsköpun. Afleiðingin er stöðnun og glötuð tækifæri. Þetta gildir jafnt um okkur sjálf sem einstaklinga, vinnustaðina sem við störfum á og samfélagið í heild.
Í ljósi þessarar reynslu er þess virði að innleiða heilbrigða vinnustaðamenningu sem bæði stuðlar að vellíðan starfsfólks og styður við árangur vinnustaða. Þegar starfsfólk með ólíkan bakgrunn og lífsreynslu fær að njóta sín í starfi vegna verðleika þess sem einstaklingar eru auknar líkur á að fleiri sjónarmið og lausnir komi fram við vinnuna sem aftur getur leitt til aukins hugmyndaflæðis og nýsköpunar. Óhjákvæmilega gefst rými fyrir fleiri hugmyndir og vinnuferli þar sem fjölbreytt reynsla, hæfileikar og raddir fá hljómgrunn.
Þetta hljómar kannski flókið en er í eðli sínu svo einfalt því við megum aldrei gleyma því að viðhorf okkar verða til hjá okkur sjálfum.
Við þurfum öll að hafa fyrir því að spegla viðhorf okkar, velta fyrir okkur hvaðan þau koma og jafnvel skoða hvort tími sé kominn til að endurskoða þau. Hvert og eitt okkar hefur áhrif á eigin viðhorf og getur valið viðhorfin sem komið er með til vinnu – ekki eingöngu stjórnendur heldur öll sem starfa saman á vinnustaðnum. Þess vegna þurfum við öll að axla ábyrgð.
Í því felst meðal annars að vera reiðubúin að hlusta og leyfa forvitninni að ráða för. Líklegt er að einhver okkar þurfi að fara út fyrir þægindaramman, læra nýja hluti og þá um leið auka viðsýnina. Þetta gerum við vegna þess að við vitum innst inni að það er þess virði þar sem aukin þekking og fjölbreytt reynsla eflir okkur bæði í leik og starfi.
Vertu skipstjóri í eigin huga og taktu virkan þátt í að skapa menningu á vinnustaðnum þínum þar sem öll fá tækifæri til að blómstra. Fangaðu litrófið sem býr í fólkinu í kringum þig og njóttu litanna í stað þess að horfa á heiminn í svarthvítu sem tilheyrir löngu liðinni tíð. Málum framtíðina saman þar sem öll eru velkomin, grípum tækifærin og njótum framfara og velgengni.

Gleðilega hinsegin daga
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir,
forstjóri Vinnueftirlitsins