Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Tökum vel á móti ungu starfsfólki – nýtt veggspjald um vinnu barna og unglinga

31. maí 2023

Vinnueftirlitið hvetur atvinnurekendur og starfsfólk til að taka vel á móti ungmennum sem eru að hefja sumarstörf.

Vinna barna og unglinga

Gæta þarf vel að þjálfun þeirra og fræðslu en rannsóknir sýna að ungu starfsfólki er því miður hættara eldra við að lenda í óhöppum og vinnuslysum.  Af þeim sökum hefur Vinnueftirlitið gefið út veggspjald um vinnu barna og unglinga sem er ætlað til upplýsinga fyrir atvinnurekendur og ungmenni sem eru að feta sín fyrstu skref á vinnumarkaði. 

Atvinnurekendur bera ábyrgð á að vinnuskilyrði ungmenna séu örugg og að þau fái viðeigandi fræðslu og þjálfun. Þannig má forðast slys og tryggja að öll komi heil heim. Með því er jafnframt lagður grunnur að því að þannig verði það starfsævina á enda. 

Öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi þar sem starfsfólki líður vel er undirstaða góðra verka. Því hvetur Vinnueftirlitið vinnustaði til að taka vel á móti ungu starfsfólki og tryggja bæði líkamlegt og sálfélagslegt öryggi þess þannig að það upplifi sig öruggt á sem flestum sviðum þegar frá upphafi. 

Til að styðja við atvinnurekendur sem hafa ungt fólk í vinnu og ungmennin sjálf hefur Vinnueftirlitið gefið út meðfylgjandi veggspjald sem byggir á reglugerð um vinnu barna og unglinga. 

Þar er meðal annars fjallað um hvaða störfum börn og unglingar mega sinna eftir aldri og almennar reglur um vinnutíma þeirra á sumrin og á skólatíma. 

Hægt er að prenta veggspjaldið út í A3 eða A4 og hengja upp á vinnustaðnum eða gera starfsfólki aðgengileg rafrænt.

Veggspjaldið er gefið út á íslensku, ensku og pólsku.

Allar nánari upplýsingar er að finna undir vinna barna og unglinga hér á vefnum. Þar er líka að finna nýtt samnorrænt kennsluefni um vinnuumhverfi og mikilvægi vinnuverndar fyrir ungmenni sem er tilvalið er að nýta og kynna fyrir þeim. 

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439