Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Skref fyrir skref – morgunfundur 29. mars

23. mars 2023

Vinnueftirlitið, VIRK og embætti landlæknis bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði miðvikudaginn 29. mars næstkomandi undir yfirskriftinni „Skref fyrir skref.“

Vinnueftirlitið

Fundurinn, sem hefst 8.30 og stendur til 10.00, verður haldinn hjá VIRK í Borgartúni 18 (í veitingasal, gengið inn að aftan) en einnig sem fjarfundur.

Morgunfundurinn er öllum opinn en skrá þarf mætingu.

Dagskráin er eftirfarandi:

  • Kynning á nýrri vefsíðu og kynningarmyndböndum

  • Innleiðing Heilsueflandi vinnustaðar hjá Hafnarfjarðarbæ – Hulda Sólveig Jóhannsdóttir

  • Framkvæmd Heilsueflandi vinnustaðar hjá Eflu – Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir og Rakel Ýr Guðmundsdóttir

  • Spurningar og spjall

Morgunfundurinn er sá þrettándi í fundaröð um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, Embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439