Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Leiðbeiningar fyrir þjónustuaðila og bílstjóra varðandi öruggan akstur með fatlaða

18. mars 2021

Leiðbeiningar ætlaðar þjónustuaðilum og bílstjórum sem annast akstur með fatlað fólk hafa nú verið gefnar út.

Vinnueftirlitið-rakaskemmdir og innivist

Félagsmálaráðuneytið gefur út leiðbeiningar um akstursþjónustu við fatlað fólk í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og hagsmunasamtök fatlaðs fólks sem er ætlað að stuðla að samræmi milli sveitarfélaga og þjónustusvæða.

Hagsmunahópar hafa kallað eftir ítarlegri leiðbeiningum fyrir þjónustuaðila og bílstjóra varðandi akstur fatlaðra – með áherslu á öryggismál. Starfshópur skipaður fulltrúum frá Samgöngustofu, Sjálfsbjörgu landssambandi hreyfihamlaðra, Sjúkratryggingum Íslands og Öryrkjabandalagi Íslands hefur tekið þessar upplýsingar saman með aðkomu Sambands íslenskra sveitarfélaga, samráðshóps félagsmálastjóra og Vinnueftirlitsins.

Markmiðið er að leiðbeiningarnar nýtist þjónustuaðilum og bílstjórum, en líka notendum þjónustunnar og sveitarfélögum þegar útboðsgögn og samningar eru gerðir.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439