Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Hugsum um: Höfuð, herðar, hné og tær við vinnu

7. júní 2024

Vinnuumhverfið hefur áhrif á starfsfólk frá toppi til táar. Horfa þarf á heildarmyndina og huga að þáttum sem hafa áhrif á andlega og líkamlega heilsu.

Höfuð, herðar, hné og tær

VIRK Starfsendurhæfingarsjóður og Vinnueftirlitið hafa tekið höndum saman og standa fyrir vitundarvakningu undir yfirskriftinni Hugsum um: Höfuð herðar hné og tær við vinnu. Hún er um mikilvægi þess að byggja upp traust og heilbrigða vinnustaðamenningu sem leggur grunn að öryggi og vellíðan starfsfólks. Áherslan er ekki hvað síst á mikilvægi þess að tekið sé vel á móti ungu fólki inn á vinnumarkaðinn.

„Með samstarfi okkar viljum við hvetja atvinnurekendur og starfsfólk til að taka vel á móti unga fólkinu okkar sem er margt hvert að taka sín fyrstu skref á vinnumarkaðinum þessa dagana þegar að skóla lýkur. Það er munur á því hvernig við upplifum vinnuumhverfið okkar og því mikilvægt að hlusta vel hvert á annað. Á það bæði við um unga og þá sem eldri eru. Þannig stuðlum við að öryggi og vellíðan allra, “ segir Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins.

Vefsíðan hhht.is er hryggjarstykki vitundarvakningarinnar. Á vefsíðunni má finna gagnlegar upplýsingar og góð ráð um það hvernig við byggjum upp traust, stuðlum að fjölbreytileika og inngildingu og eflum jákvæð samskipti í vinnunni.

„Það er mjög mikilvægt fyrir okkur sem samfélag að taka vel á móti nýju fólki inn á vinnumarkaðinn. Að mörgu er að hyggja. Upplýsingamiðlun, öflugt vinnuverndarstarf og forvarnir eru lykilatriði í því að gera fyrstu skrefin inn á vinnumarkaðinn eins örugg og hægt er og það er verðugt verkefni að vinna að því með Vinnueftirlitinu,“ segir Vigdís Jónsdóttir forstjóri VIRK.

  • Hér er hægt að hlaða niður veggspjaldi til að hengja upp á vinnustöðum landsins með myndinni sem fylgir vitundarvakningunni, en hún sýnir fjölmarga þætti í vinnuumhverfinu sem geta haft áhrif á öryggi og vellíðan starfsfólks.

  • Einnig er hægt að sækja skjámynd fyrir farsíma.

Vinnueftirlitið og VIRK hvetja atvinnurekendur og starfsfólk til að kynna sér efnið nánar á hhht.is. Frekari fróðleik um vinnuvernd er að finna á vefsíðu okkar og VIRK.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439