Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Heilsueflandi forysta og vellíðan í starfi

3. mars 2022

Vinnueftirlitið, VIRK og embætti landlæknis bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði í streymi miðvikudaginn 16. mars frá klukkan 8.30 – 10.

Vinnueftirlitið-heilsueflandi forysta

Heilsueflandi forysta og vellíðan í starfi er yfirskrift fundarins. Fyrirlesari er Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu. Streymið af fundinum verður aðgengilegt á vefsíðum stofnanna þriggja.

Mikilvægt er að leiðtogar þekki leiðir til að efla heilsu á vinnustað og nýti tækifæri til að draga úr vanlíðan í starfi. Rannsóknir sýna að samskipti og áherslur leiðtoga hafa afgerandi áhrif á vellíðan starfsfólks. Sannreynd þekking um heilsueflandi forystu byggir á rannsóknum frumkvöðla á sviðinu og sýnir að sálfélagslegir þættir á vinnustað tengjast starfsánægju, vellíðan og geta virkað sem forvarnir kulnunar í starfi.

Sjálfræði í starfi og áhrif á eigin störf geta verndað starfsmann gegn neikvæðum áhrifum álags og sama á við um félagslegan stuðning. Í erindinu verður kynnt tillaga að líkani sem byggir á sannreyndri þekkingu um heilsueflandi forystu með heildrænni nálgun sem eflir heilbrigt starfsumhverfi og vellíðan þar sem áhersla er á:

  • Sjálfræði og gagnkvæman stuðning

  • Persónulegan styrk og innri starfshvöt

  • Sameiginlegan tilgang og skýra ábyrgðarskyldu

Morgunfundurinn er sá níundi í fundaröðinni  um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.

Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439