Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Fjöldi námskeiða um vinnuvélar, vinnuvernd og efnahættur í boði

6. september 2022

Vinnueftirlitið býður upp á fjölbreytt námskeið um vinnuvélar, vinnuvernd, efni og efnahættur. Frumnámskeiðin eru kennd á nokkrum tungumálum og eru nú í fyrsta skipti í boði á úkraínsku. Flest námskeiðin eru kennd í gegnum Teams fjarfundakerfið, nema annað sé tekið fram.

Vinnueftirlitid-namskeid

Vinnuvélanámskeið

Frumnámskeið

Frumnámskeið veitir bókleg réttindi á minni vinnuvélar eins og dráttarvélar og lyftara og er undanfari að verklegri þjálfun og próftöku.

Byggingakrananámskeið

Veitir bókleg réttindi fyrir byggingakrana og hafnarkrana >18 tm. og er undanfari að verklegri þjálfun og próftöku.

Vinnuverndarnámskeið

Námskeiðið er ætlað öryggistrúnaðarmönnum og -vörðum á vinnustöðum. Tilgangurinn er að auka þekkingu þeirra á vinnuverndarmálum með áherslu á þróun öryggismenningar og forvarnir gegn helstu áhættuþáttum í vinnuumhverfi. Námskeiðið er einnig opið öðrum sem hafa áhuga á vinnuverndarmálum. Námskeiðið nemur um tólf klst. en er aðgengilegt þátttakendum í sjö daga þannig að þeir geta hagað tímanum að vild innan þess ramma.

Námskeið um efni og efnahættur

6. október

Efnahættur á rannsóknarstofum:

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem starfa á rannsóknar- og tilraunastofum þar sem hættuleg efni í föstu, fljótandi eða loftkenndu ástandi eru notuð. Fjallað er um efnahættur, reglur um notkun og upplýsingagjöf. Farið yfir verklag og varnir gegn efnahættum, meðal annars gerð áhættumats.

20. október

Efnanotkun – áhættumat:

Námskeiðið er hugsað fyrir stjórnendur, starfsmenn og sérfræðinga fyrirtækja sem nota hættuleg efni. Fjallað er um efni og efnahættur ásamt reglum um notkun og upplýsingagjöf. Farið verður yfir áhættumat vegna varasamra efna.

8. – 10. nóvember
Asbestnámskeið

Netnámskeið sem nemur um 3 klukkustundum en er opið þáttakendum í þrjá daga. Námskeiðið veitir réttindi til vinnu við asbestverk er valda lítilli mengun.

ADR-námskeið fyrir ökumenn sem flytja hættulegan farm

Grunnnámskeið veitir réttindi til flutnings á stykkjavöru. Með viðbótarnámskeiðum er hægt að öðlast réttindi til flutnings á efnum í tanki, á sprengifimum efnum og geislavirkum efnum.

12. september

ADR-endurmenntun grunnur. (Netnámskeið)

13. september

ADR-endurmenntun tankar. (Netnámskeið)

13. september

ADR-geislavirk efni

14. september

ADR-sprengifim efni

31. október – 2. nóvember

ADR-grunnnámskeið

3. – 4. nóvember

ADR-tankar

Allar nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna undir námskeið hér á síðunni. Skráning fer fram á skraning.ver.is en þar er jafnframt að finna ítarlegri námskeiðslýsingar.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439