Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Ertu á svölum vinnustað? – upptaka frá ráðstefnu

5. maí 2022

Vinnueftirlitið, VIRK og embætti landlæknis bjóða upp á örráðstefnu um heilsueflandi vinnustaði með Marie Kingston, höfundi bókarinnar Stop stress og Streitustigans, á Grand Hóteli miðvikudaginn 18. maí.

Vinnueftirlitið

Ráðstefnan hefst klukkan 10:30 og stendur til 12:00. Aðgangur er ókeypis.

Vinnustofa um streitu og vinnustaði haldin sama dag

Mary Kingston stendur einng fyrir vinnustofu um streitu og vinnustaði, sem nýtist til dæmis stjórnendum, á Grand Hotel frá 13:00 – 16:00 sama dag, miðvikudaginn 18. maí.

Vinnustofan fer fram á ensku og aðgangseyrir er 9.000 krónur. 

Vinsamlegast athugið að skilyrði fyrir þátttöku á vinnustofunni er seta á örráðstefnunni fyrr um daginn þar sem að Marie Kingston leggur þar grunn að þeim þáttum sem unnið verður með á vinnustofunni.

Marie Kinsgston er vinnusálfræðingur sem hefur unnið með streitu, forystu og skipulagsþróun í fyrirtækjum og stofnunum meira en 20 ár. Hún er höfundur fjölda bóka um streitu, þar á meðal verðlaunabókarinnar Stop Stress, sem hefur verið þýdd á ensku, rússnesku og japönsku. Marie er stofnandi Kingston Consulting, fyrirtækis sem býður upp á leiðtoga- og skipulagsþróun, stjórnendaþjálfun og streitumeðferð og forvarnir fyrir stofnanir og fyrirtæki.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439