Eftirlitsskýrslur sendar rafrænt
12. maí 2021
Vinnueftirlitið mun framvegis eiga í rafrænum samskiptum við vinnustaði í tengslum við eftirlitsheimsóknir.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5u4Mq1Uc5s3M9Q5GhcS8jE/61fa9a43ad108bd087bf33708702d56d/Vinnueftirlitid-hefur-ordid-vinnuslys.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Hefur orðið vinnuslys?](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5u4Mq1Uc5s3M9Q5GhcS8jE/61fa9a43ad108bd087bf33708702d56d/Vinnueftirlitid-hefur-ordid-vinnuslys.png?w=774&fm=webp&q=80)
Það þýðir að eftirlitsskýrslur, og önnur bréf sem þeim tengjast, verða sendar rafrænt á netföng forsvarsmanna vinnustaða og fulltrúa starfsmanna sem taka þátt í eftirlitsheimsóknum, nema óskað sé sérstaklega eftir því að þær verði jafnframt póstlagðar.
Þessi breyting er liður í þeirri vegferð stofnunarinnar að nýta upplýsingatæknina til að bjóða upp á markvissa og skilvirka þjónustu. Rafrænar sendingar eru notendavæn samskiptaleið þar sem þær koma allar á einn stað og leiða til betri rekjanleika í allri upplýsingagjöf. Jafnframt er um að ræða umhverfisvæna samskiptaleið þar sem dregur úr pappírsnotkun og umferð sem aftur leiðir til minni kolefnislosunar.