Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Breytingar á mínum síðum Vinnueftirlitsins

28. júní 2024

Vinnueftirlitið vekur athygli á því að frá og með 1. júlí 2024 mun þjónusta Vinnueftirlitsins vegna eigendaskipta, umráðamannabreytinga, götuskráninga tækja í notkun, afskráninga og beiðna um skoðun á tækjum á mínum síðum Vinnueftirlitsins færast yfir á mínar síður á Ísland.is.

Vinnueftirlitið - eru réttindin að renna út

Þeir sem hafa umboð frá sínum vinnustað til þess að fara með mál hans á mínum síðum stofnunarinnar þurfa að endurnýja umboðið sitt þar sem þau færast ekki sjálfkrafa yfir í nýtt umboðsmannakerfi á Ísland.is.

Nánari leiðbeiningar um hvernig umboð er veitt má finna hér.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda tímabundið en vonum að einstaklingum og fyrirtækjum eigi eftir að líka þjónusta okkar á Ísland.is þar sem markmiðið er að almenningur geti nálgast þjónustu ríkisstofnana á einum stað.

Vinnueftirlitið

Hafðu samband

Sími: 550 4600

Netfang: vinnueftirlit@ver.is

Afgreiðslu­tími þjón­ustu­vers

Mánudaga til fimmtudaga: 9 til 15

Föstudaga: 9 til 14

Kennitala

420181-0439