Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

Bjargráð til að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu

12. mars 2026

Upptaka frá málþinginu: Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? sem fór fram á Grand hóteli í dag er nú aðgengileg og verður hægt að horfa á hana næstu fjórar vikur.

Málþingið var afar vel sótt en um 100 manns sátu það á Grand hóteli og hátt í 200 í streymi.

Á málþinginu var fjallað um samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum og þann lærdóm sem má af því draga.

Fjallað var um þau bjargráð sem skólar og aðrir vinnustaðir hafa til að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu og hvernig má innleiða þau og nýta. Fyrirlesarar komu fram með fjölmargar jákvæðar reynslusögur, dæmi og hagnýt verkfæri sem geta gagnast vinnustöðum af öllum stærðum og gerðum.

Málþingið var afar vel sótt