Fara beint í efnið
Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Nýjar reglur um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd taka gildi

3. júlí 2026

Meðal helstu breytinga er að AMMR-reglugerðin tekur við af Dyflinnarreglugerðinni

Þann 1. júlí tóku gildi breytingar á lögum um útlendinga og lögreglulögum sem samþykktar voru á Alþingi 11. júní síðastliðinn. Lagabreytingin leiðir í íslensk lög tiltekin ákvæði gerða Evrópusambandsins á sviði verndarmála og fólksflutninga, samkvæmt samningi milli Evrópusambandsins og Íslands og Noregs.

Þá hafa að undanförnu einnig tekið gildi reglugerð um stjórnun verndarmála og fólksflutninga (AMMR) og um neyðarástand og óviðráðanleg atvik á sviði fólksflutninga og verndarmála, reglugerð um skimun ríkisborgara þriðju ríkja og reglugerð um evrópska fingrafaragrunninn Eurodac.

AMMR samstarfið

Ein helsta breytingin sem í þessu felst er að svokölluð AMMR-reglugerð (Asylum and Migration Management Regulation) hefur leyst Dyflinnarreglugerðina af hólmi. Eins og Dyflinnarreglugerðin inniheldur AMMR-gerðin reglur til að skera úr um hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og er meginreglan áfram sú að það skuli vera það ríki sem umsækjandi kemur fyrst til. Ábyrgðarreglur eru hins vegar gerðar skýrari og helst ábyrgðin jafnframt lengur hjá sama ríki. Þá er málsmeðferðinni hraðað með styttri frestum og einfaldari ferlum.

Frekari upplýsingar um málsmeðferð umsókna um vernd má finna á vefsvæðinu Alþjóðleg vernd, réttur og ferill umsókna.

Nánar má lesa um AMMR reglugerðina í upplýsingabæklingnum What you need to know about the Asylum and Migration Management Regulation.