Tímabókanir
Það er nauðsynlegt að bóka tíma í myndatöku fyrir dvalarleyfiskort.
Þú bókar tíma í gegnum noona.is eða noona appið.
Þú þarft að gefa upp upplýsingar um nafn, símanúmer og fæðingardag.
Þú getur skoðað hvenær þú átt pantaðan tíma í appinu, ef þú skyldir gleyma því.
Þú færð senda sms áminningu daginn áður en þú átt að mæta.
Þú getur afbókað tímann með einum smelli í appinu.