Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Orlofs- og desemberuppbætur 2026

20. apríl 2026

Orlofs- og desemberuppbætur með örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri og sjúkra- og endurhæfingargreiðslum hafa verið reiknaðar og greiðsluáætlanir þeirra einstaklinga sem eiga rétt á þeim greiðslum hafa verið uppfærðar á Mínum síðum. Orlofsuppbótin verður greidd 1. júlí næstkomandi og desemberuppbótin 1. desember.

Orlofs- og desemberuppbætur til einstaklinga með örorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur eru að hámarki 137.857 kr. árið 2026. Einstaklingar með hlutaörorkulífeyri geta átt rétt á 82% af þeirri fjárhæð eða 113.043 kr. Orlofsuppbótin er 40% af fjárhæðinni sem viðkomandi fær og desemberuppbótin 60%. Uppbæturnar lækka um 2% af árstekjum umfram almennt frítekjumark viðkomandi greiðsluflokks.

Upplýsingar um orlofs- og desemberuppbætur einstaklinga með örorku- eða hlutaörorkulífeyri má nálgast hér og einstaklinga með sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hér. Svör við algengum spurningum má finna hér.

Um er að ræða nýja útfærslu á útreikningi á orlofs- og desemberuppbótum sem kom til vegna innleiðingar nýs kerfis örorkulífeyris og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna, sem tók gildi 1. september 2025.

Sjá einnig reglugerð um orlofs- og desemberuppbætur.