Hægt er að óska eftir að dreifa greiðslu á kröfu inni á Mínum síðum TR
Skráðu þig inn á Mínar síður TR með rafrænum skilríkjum. Smelltu á bláa hnappinn.
Á forsíðu á Mínum síðum TR smellir þú á Skuldir og samningar.
Undir skuldir og samningar má sjá
“Almennar kröfur í innheimtu”.
Veldu þá kröfu sem þú óskar eftir að dreifa og smelltu á “Beiðni um nýja greiðsludreifingu”.
1. Frádráttur af greiðslum
2. Greiðsluseðlar
3. Fullur frádráttur
4. Eingreiðsla í banka
Hægt er að velja um tvo kosti:
1. Velja fjárhæð á mánuði - velur fasta upphæð á mánuði
2. Velja fjölda mánaða - til dæmis í 12, 24 eða 36 mánuði
Ekki er hægt að dreifa kröfu lengur en til 36 mánaða né greiða minna en 3.000 kr. á mánuði.
Þegar þú hefur valið er smellt á Senda beiðni.
Óskir þú eftir að dreifa greiðslum lengur en til 36 mánaða
getur þú sent tölvupóst á innheimta@tr.is
Takk fyrir að horfa