Um Umboðskerfi Ísland.is
Með Umboðskerfi Ísland.is geta stofnanir heimilað einstaklingum að skrá sig inn fyrir hönd fyrirtækja, barna og þeirra einstaklinga sem hafa gefið þeim umboð og framkvæmda afmarkaðar aðgerðir.
Umboð er annað hvort veitt af einstaklingi eða kemur til vegna tengsla fólks. Umboð sem eru til komin vegna tengsla eru sótt í grunnskrár þeirrar stofnunar sem ber ábyrgð á þeirri skráningu við innskráningu, til dæmis eru prókúrutengsl fyrirtækis sótt á öruggan hátt í fyrirtækjaskrá Skattsins.
Þegar einstaklingur ætlar að skrá skrá sig inn fyrir hönd annarra byrjar hann á því að skrá sig inn með sínum eigin rafrænu skilríkjum og síðan eru umboð hans sótt í umboðskerfið. Einstaklingar eru alltaf innskráðir til að tryggja öryggi og rekjanleika.
Skilmálar
Þjónustuskilmálar um innskráningarþjónustu og umboðskerfi, auk tengdra samninga og viðauka, mynda samkomulag þjónustuveitanda og þjónustuþega um þjónustuna. Með því að nota þjónustuna samþykkir þjónustuþegi skilmálana.
