Um Stafræn skírteini
Stafræn skírteini gera notendum kleift að færa sönnur á réttindi með farsímanum á hentugan og öruggan hátt þó plastskírteini gleymist eða týnist.
Í dag þjóna stafræn skírteini ekki hlutverki persónuskilríkja líkt og nafnskírteini, gefin út á plasti, og vegabréf gera.
Stafræn skírteini eru útfærð af Stafrænu Íslandi fyrir opinbera aðila sem gefa þau út. Stafræn skírteini eru stafrænar útgáfur skírteina sem byggja á einhverskonar réttindum notandans. Sem dæmi um þetta má nefna ökuskírteini, vinnvélaréttindi, skotvopnaleyfi og örorkuskírteini. Útfærsla stafrænna skírteina er í tveimur liðum gagnvart notandanum:

Birting á yfirliti yfir tiltekin réttindi í Ísland.is appinu og á mínum síðum á Ísland.is.
Útgáfa á stafrænu skírtieni með strikamerki og mynd (þar sem við á) í Ísland.is appinu.
Auk þessa má nota skírteinaskanna sem innbyggður er í Ísland.is appið, til þess að staðfesta að stafræn skírteini annarra notenda séu í gildi og ófölsuð.
Í þessu felst aukið öryggi sem tekur fram því sem flest plastskírteini geta boðið í dag.
