Um Stafrænt pósthólf
Einstaklingar og lögaðilar eiga sitt stafræna pósthólf sem aðgengilegt er á Mínum síðum á Ísland.is. Þar eru birtar sértækar, persónulegar upplýsingar og skilaboð frá hinu opinbera til einstaklinga og fyrirtækja.
Listi yfir aðila og gögn sem þeir birta í stafræna pósthólfinu
Þjónustuskilmálar
Fjármála og efnahagsráðuneytið er rekstraraðili stafræns pósthólfs. Með því að tengjast stafrænu pósthólfi gerast opinberir aðilar og aðrir aðilar sem til þess hafa leyfi samkvæmt reglugerð um stafrænt pósthólf, svokallaðir birtingaraðilar í því.
