Leiðbeiningar fyrir notendur: Mínar síður
Mínar síður á Ísland.is er miðlæg þjónustugátt sem opinberir aðilar nýta til að koma gögnum og þjónustu til einstaklinga og lögaðila á einfaldan hátt.
Allir einstaklingar og lögaðilar með íslenska kennitölu sem hafa sótt sér rafræn skilríki.
Allir einstaklingar og lögaðilar með íslenska kennitölu komast sjálfkrafa inn á Mínar síður í gegnum Ísland.is. Ekki er þörf á að sækja um aðgang sérstaklega. Þú þarft aðeins að hafa rafræn skilríki.
Ekki ennþá, en sífellt bætast við meiri gögn og þjónustur á Mínum síðum.
Til að skoða Mínar síður þurfa einstaklingar og lögaðilar að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Þannig er tryggt að viðkomandi sjái einungis sín gögn eða þau gögn sem viðkomandi hefur umboð til þess að sjá.
Þú færð rafræn skilríki á skráningarstöðvum um allt land, þær eru hjá fjarskiptafyrirækjum, bönkum og hjá Auðkenni.
Leitanlegt kort með öllum skráningarstöðvum má finna á vef Auðkennis.
Hér getur þú haft samband við Ísland.is, þjónustuver tekur við fyrirspurnum og beinir þeim í réttan farveg.
Þessi villa kemur þegar engin notandi finnst á bakvið símanúmerið/kennitöluna sem þú gefur upp.
Ef notandi var áður virkur gæti eitthvað af eftirtöldu átt við:
Rafræn skilríki eru útrunnin.
Rafræn skilríki hafa verið afturkölluð því rangt PIN númer hefur verið slegið inn of oft.
Rafræn skilríki hafa verið afturkölluð vegna breytinga á SIM-korti eða nýs símtækis.
Ef þú færð upp slíka villu þarftu að fá útgefin ný rafræn skilríki.
Ef þú átt gilt íslenskt vegabréf getur þú farið í gegnum sjálfsafgreiðsluferli og fengið rafræn skilríki gefin út í gegnum Auðkennisapp, sjá leiðbeiningar frá Auðkenni.
Eða mætt á næstu skráningarstöð rafrænna skilríkja með löggild skilríki (ökuskírteini eða vegabréf)og sótt um ný rafræn skilríki.
Athugið að stafræn skírteini eru ekki gild persónuskilríki.
Þú finnur lista yfir þá lögaðila sem þú hefur aðgang að á Mínum síðum með því að:
Skrá þig inn á Mínar síður með þínum persónulegu rafrænu skilríkum.
Í hægra efra horni velur þú nafnið þitt, þar velur þú að skipta um notanda og sérð yfirlit yfir þau umboð sem þú hefur.
Ef réttur lögaðili kemur ekki sjálfkrafa upp vantar prókúruskráningu fyrir hann hjá Skattinum.
Þá þarftu að hafa samband við Fyrirtækjaskrá Skattsins í gegnum netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is.
Við andlát lokast aðgangur að síðum einstaklings, það er því ekki hægt að veita umboð inn á Mínar síður fyrir dánarbú.
Ef þig vantar skjöl þá þarftu að vera í beinum samskiptum við viðeigandi stofnanir og framvísa umboði fyrir dánarbúið til þeirra.
Aðeins er hægt að hafa íslenskt símanúmer skráð undir upplýsingum á Mínum síðum á Ísland.is
Til þess að skrá sig inn á Mínar síður Ísland.is þarf rafræn skilríki, sem hægt er að sækja um á skráningarstöðvum Auðkennis.
Ef þú átt íslenskt vegabréf í gildi getur þú notað Auðkennisappið til þess að setja upp rafrænu skilríki.
Ef þú getur ekki skráð þig fyrir rafrænum skilríkjum þarftu að hafa beint samband við þær stofnanir sem þú þarft skjöl frá.
Þú sérð hvaða stofnun sendi þér skjöl í tilkynningarpóstum sem þú fékkst, þar sem stendur:
„[Nafn stofnunar] hefur sent þér nýtt skjal í pósthólfið þitt á Ísland.is.“
Unnið er að því að gera einkunnir og prófgráður úr íslenska menntakerfinu aðgengilegar á einum stað á Mínum síðum. Skólar erlendis eru ekki þátttakendur í því verkefni.
Einstaklingur undir 18 ára aldri þarf sjálfur að skrá sínar bankaupplýsingar á Mínum síðum Ísland.is. Viðkomandi skráir sig inn með sínum rafrænu skilríkjum, velur síðan:
Mínar upplýsingar → Mínar stillingar → Upplýsingar
Þar er hægt að skrá þann bankareikningi sem viðkomandi vill að Fjársýsla ríkisins noti til endurgreiðslu.
Foreldrar eða forráðamenn geta ekki skráð inn bankaupplýsingar fyrir börn.
Síðast yfirfarið: 6. júlí 2026
