Ísland.is appið er eingöngu hannað fyrir einstaklinga, ekki er hægt að skrá sig þar inn í umboði fyrir lögaðila, aðra einstaklinga eða börn.
Mögulegt er að fá tilkynningar um ný skjöl í pósthólfinu beint úr Ísland.is appinu. Það þarf að kveikja á tilkynningum undir stillingum með flipanum „Tilkynningar í Ísland.is appinu“.
Það er gert með því að fara í stillingar í appinu, undir Öryggi og persónuvernd, „Breyta PIN“.
Við uppsetningu á appinu er notanda boðið að velja PIN-númer eða að nota lífkenni (andlitsgreiningu eða fingrafar) til að opna appið með einföldum hætti. Ef þú mannst ekki PIN-númerið er óhætt að slá inn rangt PIN-númer þar til appið endurstillir sig og bíður upp að ská sig inn með rafrænum skilríkjum. Í kjölfarið munt þú fá möguleikann á að velja þér nýtt PIN-númer.