Framvísun og staðfesting stafrænna ökuskírteina
Hvernig framvísa ég stafrænu ökuskírteini?
Upplýsingar fyrir notendur sem þurfa að sýna stafrænt ökuskírteini, til dæmis til að sanna ökuréttindi fyrir lögreglu eða gera grein fyrir sér.
Sæktu Ísland.is appið og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
Ef þú ert þegar með appið getur þú opnað það eins og venjulega.Opnaðu Ísland.is appið og smelltu á Skírteini í valmynd neðst á skjánum.
Smelltu á bleika flekann með skjaldamerkinu merktan Ökuskírteini.
Sýndu skjáinn sem birtist. Þar ætti að vera mynd af þér, strikamerki og aðrar upplýsingar um þín ökuréttindi.
Ef gerð er krafa um að skírteinið sé staðfest með skönnun, skannar sá sem tekur á móti strikamerkið á skjánum með öðrum síma.
Hvernig sannreyni ég starfrænt ökuskírteini?
Upplýsingar fyrir þau sem taka á móti og sannreyna stafræn ökuskírteini annars notanda. Sannreyna eða staðfesta má stafræn ökuskírteini með skanna sem innbyggður er í Ísland.is appið.
Sæktu Ísland.is appið og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
Ef þú ert þegar með appið getur þú opnað það eins og venjulega.Opnaðu Ísland.is appið í þínum síma og smelltu á Skírteini í valmynd neðst á skjánum.
Biddu þann sem framvísar skírteininu að opna skírteinið sitt og snúa því að þér.
Gilt skírteini inniheldur:Mynd af notanda.
Nýja dags- og tímasetningu í reitnum Síðast uppfært.
Strikamerki með þunnri grænni línu undir sem telur niður gildistíma hvers strikamerkis. Strikamerkið og tímasetning uppfærast sjálfkrafa á mínútu fresti.
Smelltu á ferkantaðan takka efst í hægra horni skírteinaskjásins á þínu tæki til að opna skannann.
Snúðu þínum síma að strikamerkinu á síma þess sem sýnir skírteinið. Skönnun hefst.
Skanninn birtir svar sem tilgreinir hvort strikamerkið sem var skannað er gilt eða ekki:
Skönnun á gildu strikamerki skilar upplýsingum um eiganda skírteinis með staðfestingarskjá í þinn síma þar sem þú sérð meðal annars ljósmynd, nafn og gildistíma.
Skönnun á ógildu strikamerki skilar villu sem tilgreinir ef eitthvað er athugavert við strikamerkið, til dæmis ef skírteinið er útrunnið eða ógilt.
