Fara beint í efnið

Gagnagátt Sjúkratrygginga

Gagnagátt er „mínar síður“ fyrir heilbrigðisstarfsmenn og rekstraraðila sem eru í viðskiptum við Sjúkratryggingar.

  1. Upplýsingar í Gagnagátt eru tvískiptar

    • Viðskiptaupplýsingar. Upplýsingar um viðskipti rekstraraðila við Sjúkratryggingar s.s. greiðsluskjöl og yfirlit ýmiss konar í tengslum við greiðslur. Aðgang fá allir rekstraraðilar sem eru í viðskiptum við Sjúkratryggingar. Aðgangur er eingöngu veittur í gegnum kennitölu rekstraraðila.

    • Upplýsingar um réttindi sjúklinga og umsýsla. Samanstanda af birtingu á réttindastöðu sjúklinga, umsókna, vottorða og ýmissa upplýsinga sem tengjast sjúklingum. Aðgang fá heilbrigðisstarfsmenn og starfsmenn þeirra. Aðgangur er eingöngu veittur í gegnum eigin kennitölu heilbrigðisstarfsmanns.

  2. Aðgangur að Gagnagáttinni
    Eftirtaldir aðilar hafa aðgang að upplýsingum í Gagnagáttinni:

    • Persónuverndarfulltrúar. Persónuverndarfulltrúar rekstraraðila og/eða heilbrigðisstofnana geta fengið sérstakan aðgang að Gagnagátt til að senda viðkvæm skjöl til Sjúkratrygginga og móttaka slík skjöl í gegnum gáttina. Til að persónuverndarfulltrúar geti nýtt sér þessa lausn þarf að senda beiðni um stofnun aðgangs til hjalp@sjukra.is.

    • Rekstraraðili (fyrirtæki/stofnanir) fær viðskiptaaðgang með nýskráningu á kennitölu.

    • Heilbrigðisstarfsmaður fær aðgang að réttindastöðu og umsýslu með nýskráningu eigin kennitölu. Heilbrigðisstarfsmaður sem er í viðskiptum við Sjúkratryggingar í eigin kennitölu fær aðgang að viðskiptahluta og réttindahluta Gagnagáttar.

    • Starfsmenn í heilbrigðisþjónustu. Rekstraraðili eða veitandi heilbrigðisþjónustu getur veitt starfsmanni (t.d. starfsmanni í móttöku eða í bókhaldi) aðgang að Gagnagáttinni og úthlutað honum aðgangi að upplýsingum sbr. lið I. Virkni til úthlutunar er staðsett inni í gáttinni undir flokknum „Úthlutun á aðgangi“. Aðgangur starfsmanns er á ábyrgð viðkomandi aðgangsveitanda samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar. Starfsmaður undirritar sérstaka trúnaðaryfirlýsingu.

  3. Miðlun upplýsinga og gagna til Sjúkratrygginga
    Sjúkratryggingar leggja ríka áherslu á að miðlun gagna og önnur samskipti fari fram í gegnum Þjónustugátt stofnunarinnar, þ.e. Gagnagátt, sbr. 50. gr. laga nr. 112/2008. Öruggasta leiðin fyrir viðskiptavini Sjúkratrygginga til að senda beiðnir, umsóknir og önnur gögn er í gegnum Þjónustugátt, sem og að taka á móti gögnum frá stofnuninni.

    Veitendur heilbrigðisþjónustu og aðrir rekstraraðilar geta sent skjöl og beiðnir í gegnum Gagnagátt stofnunar/fyrirtækis og tekið á móti gögnum.

    Persónuverndarfulltrúar geta fengið sérstakan aðgang að Gagnagátt til að senda skjöl og beiðnir til Sjúkratrygginga og taka á móti gögnum.

Viðskiptaupplýsingar

Réttindastaða og umsýsla

Rekstraraðili

X

Heilbrigðisstarfsmaður  (getur einnig verið rekstraraðili)


X

Starfsmaður í heilbrigðisþjónustu (vinnur í umboði rekstraraðila eða heilbrigðisstarfsmanns)


X


X