Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru árlega veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Verðlaunin voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996 og hafa síðan verið veitt á ári hverju við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Allir nemendur sem skila inn lokaskýrslu fyrir auglýstan frest koma til greina við veitingu verðlaunanna.
Árlega velur stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna um 10-15 verkefni sem unnin eru á árinu sem úrvalsverkefni. Af þeim eru svo 5-6 verkefni valin sem öndvegisverkefni og hljóta þau tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna byggir mat sitt á verkefnum á mati fagráða sjóðsins, sem eru fimm:
fagráð á sviði heilbrigðisvísinda,
fagráð á sviði verkfræði, tæknivísinda og raunvísinda,
fagráð á sviði náttúru- og umhverfisvísinda.
fagráð á sviði hugvísinda og
fagráð á sviði félagsvísinda
Verðlaunaverkefni síðustu ára:
2026 - Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga
Alexandra K. Hafsteinsdóttir, nemi í jarðfræði við Háskóla Íslands.
2025 - Lífupplýsingafræðileg greining á kælisvari frumna
Valdimar Sveinsson, nemi í læknisfræði við Háskóla Íslands