Ársfundur Erasmus+
Ársfundur Erasmus+ er skipulagður árlega af Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi, sem rekin er af Rannís. Tekin eru fyrir þau stefnumál sem hæst ber á sviði mennta- og æskulýðsmála í Evrópu og þau sett í íslenskt samhengi. Málefni eru rædd þverfaglega og áhersla lögð á góða fyrirlesara, virka þátttöku gesta og málefnalegar umræður.
Ársfundur Erasmus+ 2026 bar yfirskriftina Færni til framtíðar og fór hann fram 5. mars 2026 í glæsilegu húsnæði Tækniskólans í Sjómannaskólanum við Háteigsveg. Markmið fundarins var að styðja við umræðu um stöðu færnimála á Íslandi og setja færniþróun fyrir framtíðina í forgrunn. Fjallað var um tækifæri og árangur í Evrópusamvinnu og sóttu gestir úr mennta-, æskulýðs- og íþróttastarfi fundinn
Nánari upplýsingar um ársfund Erasmus+ 2026 og upptaka af fundinum.