Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs
Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs (áður Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs) eru veitt ungu vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað framúr og skapi væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi.
Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987, en þau voru veitt í fyrsta sinn á 50 ára afmæli atvinnudeildar Háskóla Íslands. Markmiðið með veitingu Hvatningarverðlaunanna er að hvetja vísindafólk til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindafólks. Árlega er auglýst eftir tilnefningum til verðlaunanna, sem eru afhent við hátíðlega athöfn á Rannsóknaþingi Rannís.

Handhafar Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs
2026 - Dr. Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands
2025 - Dr. Jón Emil Guðmundsson, lektor í stjarneðlisfræði við Háskóla Íslands
2024 - Dr. Þórhildur Halldórsdóttir, lektor við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík
2023 - Dr. Heiða María Sigurðardóttir, Prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands