Vaxtarsprotinn

Vaxtarsprotinn er viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Samtaka Sprotafyrirtækja, Rannís og Háskólans í Reykjavík og er afhentur þeim sprotafyrirtækjum sem sýna mestan vöxt í söluveltu milli síðasta árs og ársins á undan. Tilgangurinn er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.
Vaxtarsprotinn hefur verið afhentur árlega frá árinu 2007.
Hér er listi yfir fyrirtæki sem hlotið hafa Vaxtarsprotann, en nánari upplýsingar má finna með því að smella á heiti
fyrirtækjanna.