Alexandra K. Hafsteinsdóttir hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir verkefnið Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga
20. janúar 2026
Alexandra er nemi í jarðfræði við Háskóla Íslands en leiðbeinendur voru Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir, Finnbogi Óskarsson, Auður Agla Óladóttir og Sigurður Garðar Kristinsson jarðfræðingar hjá Íslenskum orkurannsóknum. Verðlaunin í ár er LAVA Vasi, handblásinn úr endurunnu gleri frá Fólk Reykjavik.

Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum þriðjudaginn 20. janúar þar sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhenti verðlaunin.
Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2025 en sjóðurinn heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Markmið verkefnisins var að kortleggja grunnvatnsstrauma á Reykjanesskaga með því að mæla leiðni (seltu) og greina anjónir í ferskvatni víðs vegar á skaganum, á sama tíma og þróað var verklag í kringum nýja rafknúna vatnsdælu. Tekin voru 24 sýni af grunnvatni víðs vegar á skaganum sumarið 2025 úr grunnum ferskvatnsborholum. Í tíu borholum voru tekin sýni með nýju dælunni, sem fengið hefur viðurnefnið „Perlufestin“. Hún er einstaklega þægilegt og fyrirferðarlítið verkfæri til sýnatöku, ólíkt hefðbundnum vatnsdælum sem eru sverar, þungar og knúnar áfram af stórum rafstöðvum. Perlufestin hentar vel til sýnatöku úr grönnum ferskvatnsholum sem ekki er hægt að koma hefðbundinni borholudælu í, og auðvelt er að flytja hana fótgangandi milli staða sem eru annars óaðgengilegir. Leiðni og anjónir voru mældar í vatnssýnunum og niðurstöður greininganna settar fram á kortum sem sýna dreifingu þeirra á skaganum. Niðurstöðum ber vel saman við fyrri rannsóknir á vatnafari skagans. Skýr skil eru milli vatnasvæða sem tengjast mismunandi berggrunni á hverju svæði fyrir sig. Níunda eldgosið í Sundhnúkagígaröðinni hófst við framkvæmd rannsóknarinnar. Fjöldi sýna voru tekinn í návígi við gosstöðvarnar meðan á því stóð og þau borin saman við eldri gögn af svæðinu. Niðurstöður efnagreininga þeirra sýna benda ekki til þess að eldvirkin hafi markverð áhrif á efnasamsetningu grunnvatnsins en lítil sem engin breyting er á efnainnihaldi grunnvatns á svæðinu frá upphafi mælinga.
Fimm önnur verkefni fengu sérstaka viðurkenningu:

Efnisheimar
Verkefnið unnu Bjarki Þór Wíum Sveinsson og Gísli Hrafn Magnússon nemendur í arkitektúr í LHÍ. Leiðbeinendur voru Anna Kristín Karlsdóttir hjá Lúdika arkitektar.

Lífkol: brú milli fiskeldis og landbúnaðar
Verkefnið er hluti af Matvælasjóðsverkefninu Jarðvegsbætandi lífefni í umsjón Íslenska sjávarklasans og var unnið af Ásdísi Öglu Sigurðardóttur, nema í Matvælafræði við HÍ. Leiðbeinendur voru Jónas Baldursson og Katrín Hulda Gunnarsdóttir hjá Matís.

TENGJA – nýting á bakvatni hitaveitu í almannaþágu
Verkefnið var unnið af Janek Beau, Max Greiner, Kötlu Taylor og Tuma Valdimarssyni nemum í Hönnun, umhverfi og áskoranir í LHÍ. Leiðbeinendur voru Heimir Tryggvason hjá Veitum og Jón Helgi Hólmgeirsson lektor í hönnunardeild LHÍ.

Vöktun á útbreiðslu gufupúða á háhitasvæðum
Verkefnið vann Hugo Alejandro Arteaga Vivas nemandi í Jarðeðlisfræði við HÍ. Leiðbeinandi var Þorbjörg Ágústsdóttir jarðeðlisfræðingur, sérfræðingur í jarðskjálftarannsóknum hjá Íslenskum Orkurannsóknum, og Egill Árni Guðnason jarðeðlisfræðingur hjá Íslenskum Orkurannsóknum.

Þrívíddarprentuð æfingalíkön fyrir sónar
Verkefnið var unnið af Altina Tinna Zogaj, nemanda í Læknisfræðilegri verkfræði við HÍ, og Guðbjörgu Láru Magnúsdóttur, nemanda í heilbrigðisverkfræði við HR. Leiðbeinendur voru Valgerður Guðrún Halldórsdóttir, lektor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, og Dr. Paolo Gargiulo, forstöðumaður heilbrigðistækniseturs HR og prófessor við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík.

Nánar um öll tilnefnd verkefni
Ljósmyndari: Arnaldur Halldórsson
Nánar um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru fyrst veitt árið 1996. Í stjórn sjóðsins 2023-2026 sitja: Björgvin Stefán Pétursson, formaður, skipaður án tilnefningar, Sævar Helgi Bragason, tilnefndur af vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs, Ásdís Jóhannesdóttir, tilnefnd af Samtökum iðnaðarins, Alexandra Briem, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Erla Guðbjörg Hallgrímsdóttir, tilnefnd af Landssamtökum íslenskra stúdenta.
Árlega velur stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna um tíu verkefni sem unnin eru á árinu sem úrvalsverkefni. Af þeim eru svo fjögur til sex verkefni valin sem öndvegisverkefni og hljóta þau tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.
Stjórn sjóðsins byggir mat sitt á verkefnum á mati fagráða sjóðsins, en þau eru sex:
Fagráð á sviði félagsvísinda, lögfræði og menntavísinda
Fagráð á sviði lífvísinda, klínískra rannsókna og lýðheilsu
Fagráð á sviði hugvísinda og lista
Fagráð á sviði náttúru- og umhverfisvísinda
Fagráð á sviði raunvísinda og stærðfræði
Fagráð á sviði verkfræði og tæknivísinda