Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Persónuvernd Forsíða
Persónuvernd Forsíða

Persónuvernd

Þessi frétt er meira en árs gömul

Afgreiðsla á erindi Creditinfo Lánstrausts vegna nýs starfsleyfis

11. júní 2021

Persónuvernd hefur afgreitt ósk frá Creditinfo Lánstrausti hf. um breytingu á nýju starfsleyfi til söfnunar og miðlunar upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust, svo og frestun á gildistöku leyfisins. Orðalagi eins ákvæðis var breytt en ekki efni þess. Þá var orðalag annars ákvæðis endurskoðað til að koma í veg fyrir óhóflegan fjölda póstsendinga. Að öðru leyti var leyfinu ekki breytt en fallist var á að þrjú ákvæði kölluðu á það mikla vinnu til aðlögunar að nokkur frestur í því skyni ætti rétt á sér. Var hann veittur til 1. júlí nk.Sjá nánari umfjöllun hér.

Persónuvernd

Hafa samband

postur@personuvernd.is

Sími: 510 9600

Afgreiðslu­tími

Virka daga frá 10 til 12 og 13 til 15

Símatími lögfræðinga er alla fimmtudaga frá 9 til 12

Stað­setning

Laugavegur 166, 4. hæð

105 Reykjavík, Ísland

Kennitala: 560800-2820