Persónuvernd kallar eftir skýringum
9. desember 2011
Persónuvernd hefur ákveðið að kalla eftir skýringum Landspítala - Háskólasjúkrahúss af tilefni ábendinga og kvartana yfir meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga um 158 einstaklinga í tengslum við rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum. Mun upplýsingum um þá hafa verið miðað frá LSH og dreift með tölvupósti.<br>
Þann 5. desember sl. barst Persónuvernd kvörtun einstaklings vegna miðlunar lista yfir netföng þátttakenda í rannsókninni „Ofbeldi í nánum samböndum“. Persónuvernd hefur ákveðið að óska eftir skýringum frá Landspítala-Háskólasjúkrahúsi.