Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Réttarlæknisfræði

  • Réttarlæknisfræði er undirsérgrein læknisfræðinnar sem tengir læknisfræði og réttarkerfi. Hún notar læknisfræðilegar aðferðir til að leysa mál sem snúa að einstaklingum í þágu réttarkerfisins.

  • Helstu verkefni snúa að:

    • Rannsóknum á dauðsföllum

    • Áverkarannsóknum á lifandi fólki

  • Réttarlæknir annast réttarkrufningar að beiðni lögreglu eða héraðssaksóknara til að komast að dánarorsök og dánaratvikum (slys, sjálfsvíg, manndráp, náttúrlegur dauðdagi eða óviss dánarorsök).

  • Réttarkrufningar á Íslandi eru framkvæmdar eingöngu á meinafræðideild Landspítala, um 300 á ári, og rannsóknirnar eru oft yfirgripsmiklar og tímafrekar (niðurstöður geta tekið allt að 6 mánuði).

  • Við krufningar getur komið í ljós áður óþekkt sjúkdómsástand sem getur haft erfðafræðilega þýðingu fyrir aðstandendur

  • Venjulega líða 2–3 dagar frá andláti til réttarkrufningar, sem þarf að hafa í huga við skipulag útfarar og kistulagningar.

  • Dánarvottorð er gefið út strax að lokinni krufningu til að hægt sé að halda útför. Það berst rafrænt til sýslumanns: https://island.is/danarvottord

  • Upplýsingar um niðurstöður réttarkrufninga eru veittar af lögreglu viðkomandi máls, ekki beint frá deildinni.